Veitingar og veislur allt árið
Viðeyjarstofa býður uppá eins einstæð salarkynni fyrir brúðkaup, fundi, veislur, jólahlaðborð og aðrar samkomur
Viðeyjarstofa er tilvalinn staður til að koma saman og njóta veitinga í rólegu og notarlegu umhverfi. Yfir sumartímann eru daglegar áætlunarferðir og boðið uppá ýmsar kaffiveitingar. Yfir vetrartímann eru reglulegar siglingar um helgar.
Veislur, fundir og brúðkaupsveislur eru í boði allt árið í kring og rúmar húsið allt að 150 manns í sæti.
Gallery Restaurant – Hótel Holti sér um allar veitingar í Viðeyjarstofu og hafa gert frá apríl 2010.
Eyjan hefur uppá margt að bjóða, bæði fyrir hópa og einstaklinga. Óvissuferðir sem innihalda siglingu, leiðsögn um eyjuna og góð máltíð í góðra vina hópi líður sjaldan úr minni.
Hópefli - óvissuferð - fjölskyldumót
Viðeyjarstofa og Skemmtigarðurinn hafa tekið höndum saman til að gera þína upplifun enn betri. Hvort sem þú ert að skipuleggja fyrirtækja samkomu, ættarmót eða ferð á vegum íþróttafélags þá getur starfsfólk Skemmtigarðsins útbúið dagskrá sem að hentar þér. Nánari upplýsingar
Endilega hafið samband við okkur fáið tilboð í afmælisveisluna, brúðkaup, jólasamkomu, óvissuferð, ættarmót eða annað.



