Gallery Restaurant
Gallery Restaurant – Hótel Holt sér um allar veitingar í Viðeyjarstofu og hafa gert frá apríl árið 2010.
Veitingastaðurinn hefur allt frá opnun þess árið 1965 verið í allra fremstu röð á Íslandi og þekktur fyrir góðan mat og gæðaþjónustu.
Friðgeir Ingi Eiríksson, yfirmatreiðslumeistari, og hans aðstoðarmenn sjá til þess að glæsilegur matseðillinn sé framreiddur af metnaði og mikilli fagmennsku, þar sem upplifunin er höfð að leiðarljósi.
Gestir Viðeyjarstofu fá að njóta sömu veitinga og á Gallery Restaurant þar sem sömu hendur sjá um alla matreiðslu.
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it við okkur og við látum draumaveisluna verða að veruleika.



