Friðarsúlan

Friðarsúlan í Viðey er útilistaverk unnið af Yoko Ono til minningar um John Lennon. Friðarsúlan er einskonar tákn fyrir baráttu hjónanna fyrir heimsfriði sem hófst snemma á 7. áratug 20. aldar. Friðarsúlan var fyrst tendruð 9. október 2007 við hátíðlega athöfn í Viðey. Ár hvert er Friðarsúlan tendruð tveimur tímum eftir sólsetur frá afmælisdegi John Lennons, 9. október, til og með 8. desember en þann dag dó John Lennon árið 1980.
Þar að auki er Friðarsúlan tendruð í eina viku í kringum vetrarsólstöður, á gamlárskvöld, í eina viku í kringum vorjafndægur og á sérstökum hátíðardögum sem listamaðurinn og Reykjavíkurborg koma sér saman um.

Friðarsúluferðir
titleFriðarsúluferðir eru áhugaverðar kvöldferðir helgaðar Friðarsúlunni og baráttu John Lennons og Yoko Ono fyrir heimsfriði. Ferðirnar taka um einn og hálfan til tvo tíma með leiðsögn.
Gengið er að súlunni og stoppað á áhugaverðum stöðum á leiðinni þar sem leiðsögumaður miðlar upplýsingum um sögu, náttúru og listir í eyjunni. Óskatré Yoko Ono er einnig staðsett í Viðeyjarkirkju og í lok ferðarinnar gefst gestum kostur á að hengja ósk sína á tréð við í friðsælli og notalegri stemningu.
Styrkur, kraftur og ljómi Friðarsúlunnar tekur mið af veðurfari hverju sinni og ef heppnin er með í för leika norðurljósin við friðarljós súlunnar.

Friðarsúluferðir eru í boði frá Skarfabakka:


- 9. október til 8. desember kl. 20:00
- 22., 23. og 27. desember kl. 18:00
- 31. desember kl. 16:00
- 20. mars til 26. mars kl. 20:00 
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it þarf fyrir klukkan 16:00 samdægurs!