Hugmyndir
Upplifðu Viðey á allt annan hátt!
Viðeyjarstofa og Skemmtigarðurinn hafa tekið höndum saman til að gera þína upplifun enn betri. Hvort sem þú ert að skipuleggja fyrirtækja samkomu, ættarmót eða ferð á vegum íþróttafélags þá getur starfsfólk Skemmtigarðsins útbúið dagskrá sem að hentar þér.
Langar þig í ævintýralegan ratleik um eyjuna eða kannski vera með hópefli til að þétta hópinn og bæta samskipti?
Góð skipulagning, þverfaglegur mannauður, nýstárlegar hugmyndir og vel þjálfað starfsfólk gerir það að verkum að ferðir á vegum Skemmtigarðsins mæta þínum þörfum og auðvelda þér að ná settum markmiðum, hvort sem það er í starfi eða leik.
Leyfðu okkur að sjá um skipulagninguna, meira en áratugs reynsla og fagmennskan í fyrirrúmi. Við búum til einstakan dag sérsniðinn fyrir þig.
Hugmyndir
-Stangarveiði og aflinn eldaður í Viðey
-Ratleikur
-Grillveisla
-Hestaleiga
-Fjölskylduferðir
-Hópefli
-Gönguferðir með leiðsögn
-Hádegis- eða kvöldverður eftir hvalaskoðun
-Fuglaskoðun
og margt fleira.......
Hafðu samband við okkur í dag og við aðstoðum þig við að gera daginn eftirminnilegan!
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it



