Sagan

Viðeyjarstofa er stórt, gamalt steinhús í Viðey í Kollafirði. Húsið var byggt af Skúla Magnússyni landfógeta sem embættisbústaður og er elsta hús Reykjavíkur. Við hlið Viðeyjarstofu stendur Viðeyjarkirkja. Kirkjan er með upprunalegum innréttingum sem eru þær elstu á landinu.

Eyjan er afar gróðursæl og var öldum saman talin ein besta bújörð landsins. Hún er mikil náttúruprýði með góðu útsýni yfir höfuðborgina. Friðarsúlan gefur staðnum skemmtilegan blæ og eykur til muna ánægju þeirra sem heimsækja eyjuna.

Við bjóðum þér afnot af þessu einstaka húsi á þessum merka sögustað þar sem sagan bókstaflega andar úr hverju horni og hverri fjöl og nostalgían er alls ráðandi. Í þessu umhverfi verður hvert tilefni að einstökum viðburði.
Viðeyjarstofa er tilvalinn staður til að vera með hvers konar veislur, fundi og ýmis konar samkvæmi allt árið.
Húsið rúmar allt að 150 manns í sæti.

Boðið er upp á samsetta hópmatseðla þar sem allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.